Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Þrjú af undirstöðuritum bahá'í trúarinnar koma út í íslenskri þýðingu


4. febrúar 2021 Höfundur: siá

 

Þrjú af undirstöðuritum baháʼí trúarinnar eru komin út í íslenskri þýðingu. Hið fyrsta er Kitáb-i-Aqdas, helgasta bók Bahá’u’lláh. Aqdas er móðurbók baháʼí opinberunarinnar og hefur verið lýst sem „sáttmála framtíðarmenningar“ mannkynsins. Hún er höfuðuppretta baháʼí laga og stofnana og í henni fjallar Bahá’u’lláh um grundvallarreglur trúarinnar, siðfræði, dulspeki, félagslegar meginreglur og spádóma
Þá kemur út ritið Sáttmálinn en þar er að finna Bók sáttmálans (Kitáb-i-‘Ahd) og erfðaskrá ‘Abdu’l-Bahá.
Erfðaskrá ‘Abdu’l-Bahá er eitt af undirstöðuritum baháʼí trúarinnar og nátengd helgustu bók Bahá’u’lláh, Kitáb-i-Aqdas. Hún er ein af þremur stofnskrám baháʼí stjórnskipunar ásamt Töflu Karmels og Töflum hinnar guðlegu áætlunar. Í erfðaskránni er lagður grunnur að stofnunum baháʼí trúarinnar, tengsl þeirra skilgreind, skjaldborg slegin um réttindi allra manna og kveðið á um valdsumboð og skyldur. Erfðaskránni er því lýst sem stofnskrá heimssiðmenningar og mannréttindasáttmála alls mannkyns.
 
Mikilvægt er að sem flestir geti eignast þessar bækur og fengið þær í hendur sem fyrst og því hefur Þjóðarráðið ákveðið að söluverð á Kitáb-i-Aqdas verði aðeins 4000 kr. Þjóðarráðið ákvað einnig að landssjóður beri sendingakostnað út á land fram að Naw-Rúz þannig að verðið heimkomið verði það sama óháð búsetu. Samfélög eru hvött til að taka sig saman til að lágmarka flutningskostnað. Söluverð á síðara ritinu, Sáttmálinn, verður 2000 kr.