Bygging Bahá'í tilbeiðsluhúss Kongó (DRC) hófst á sunnudaginn með viðhöfn á staðnum þar sem tilbeiðsluhúsið mun rísa. Athöfninni var sjónvarpað í ríkissjónvarpi Kongó. Embættismenn, fulltrúar trúarsamfélaga og höfðingjar voru viðstaddir. Á sama tíma voru haldnar hátíðarsamkomur þvert yfir þetta víðáttumikla land og ótölulegur fjöldi tók þátt í bænahaldi til að halda upp á þennan mikilvæga áfanga. Nánar á síðu BWNS: https://news.bahai.org/story/1460