Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Farzam Arbab, 1941–2020 | BWNS


27. september 2020 Höfundur: siá

 

Dr. Farzam Arbab

Dr. Farzam Arbab

 

Farzam Arbab, fyrrverandi meðlimur Allsherjarhúss réttvísinnar andaðist 25. september 2020 í San Diego, Bandaríkjunum. Hann var 78 ára gamall. Í bréfi frá Allsherjarhúsi réttvísinnar segir meðal annars: Hann var gæddur miklum gáfum, ástríku hjarta og geislandi anda, sem beindist ávallt að Opinberun Bahá’u’lláh, sem hann leitaðist við að nýta til að öðlast innsæi, sem gæti, fyrir tilstuðlan menntunar, aukið andlega og vitsmunalega hæfni heilla þjóðfélagshópa.