MANAMA, Bahrain, 19. desember 2022, (BWNS) — Umræður um bætta sambúð í Bahrain hafa komið aftur til tals í auknum mæli eftir að haldnar voru samkomur á þjóðlegum vettvangi sem nefnast „Bahrain málþingið um samtal: Sambúð austurs og vesturs," sem konungurinn Hamad bin Isa Al Khalifa hefur veitt brautargengi.
Frans páfi og aðal íman Al-Azhar moskunnar hafa sótt sumar af þessum samkomum. Trúarleiðtogar, embættismenn, fulltrúar almennings, meðlimir Bahá‘í skrifstofu ytri samskipta, og Bani Dugal, fulltrúi Alþjóðlega bahá‘í samfélagsins, hafa einnig hist á þessum samkomum, til að ræða hvernig hægt sé að auka samstöðu í þjóðfélaginu.