Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Bahá'í sumarmótið að Reykhólum 2023


Loftmynd af Reykhólaskóla

Reykhólaskóli

Dagana 30. júní til 2. júlí verður haldið sumarmót fyrir alla fjölskylduna í Reykhólaskóla í ættarmótsstíl. Þar verður boðið upp á samveru og fræðslu, grill og göngutúr, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
 
Á föstudagskvöld verður skipulagður göngutúr um Reykhóla fyrir alla fjölskylduna. Á laugardags- og sunnudagsmorgun verður Matthías Pétur Einarsson með erindi sem ber titilinn Vinna, auður og þjónusta í ljósi Bahá'í kenninga. Á laugardagseftirmiðdag verða Skógar í Þorskafirði heimsóttir undir dyggri handleiðslu Starfshóps um Skóga þar sem gestir fá að leggja af mörkum og njóta skógarins um leið. Eftir heimsókn í sundlaugina verða hamborgarar og pylsur grillaðar, vonandi í góðu veðri. Kvölddagskrá með söng og glensi verður um kvöldið.
 
Hægt er að nálgast PDF skrár með dagskrártöflu og verðskrá hér fyrir neðan (sjá hlekki hér fyrir neðan).
 
Skráning fer fram í síma 567-0344 á opnunartíma Bahá'í þjóðarskrifstofunnar til 15. júní eða með því að fylla út rafrænt skráningareyðublað. Sjá hlekk hér fyrir neðan. Skráningarfrestur er til og með 25. júní.
 

Athugið að enginn posi verður á staðnum. Greiðslur þarf að inna af hendi með millifærslu eða í reiðufé.

 Gisting

Hægt er að gista í svefnpokaplássi eða herbergjum í sjálfum skólanum. Þó eru aðeins fimm herbergi í boði þar (þau eru nú uppbókuð). Í hverju þeirra eru tvö óuppbúin rúm og geta því gist t.d. 2 fullorðnir og 2 börn á dýnum á gólfi. Gestir í svefnpokaplássi sofa í stóru sameiginlegu rými á dýnum á gólfi. Þeir sem gista í herbergi og svefnpokaplássi þurfa að koma með eigin rúmföt eða svefnpoka og kodda. Einnig er hægt að tjalda við skólann. Þeir sem ekki fá herbergi eða ekki treysta sér til að sofa í svefnpokaplássi í sal með öðrum eða geta ekki verið í tjaldi þurfa að finna sér gistingu á eigin vegum í nágrenninu. Sjá t.d:

Reykhólar HI hostel (Booking.com) - sjá á Google Maps

Gil guesthouse (Booking.com) - sjá á Google Maps

Djúpidalur (Facebook síða) - sjá á Google Maps