Yngstu börn samfélagsins og foreldrar þeirra hittast vikulega í bahá'í þjóðarmiðstöðinni, Kletthálsi 1. Í síðasta skipti, þann 12. maí, var þemað hreinlæti. Sögð var saga um hreinlæti og í framhaldinu var leikur út frá sögunni sem börnin höfðu mjög gaman af. Farið var með bænir, sungið, dansað og borðað saman.