Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Álfuráðgjafar ræða um andlega umbreytingu og þjóðfélagsbreytingar: 3. hluti


14. ágúst 2018 Höfundur: siá
Taraz Nadarajah (til hægri), meðlimur Álfuráðs Eyjaálfu, talar við Mark Sisson, meðlim Álfuráðs Ameríkjuríkja.

Taraz Nadarajah (til hægri) ráðgjafi Eyjaálfu ræðir við Mark Sisson, ráðgjafa Ameríkjuríkja.

 

BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 7. ágúst 2018 (BWNS) — Hópur álfuráðgjafa hittust meðan á ráðstefnu við Bahá'í heimsmiðstöðina stóð til að ræða saman um samfélagsuppbyggingu, andlega umbreytingu og þjóðfélagsbreytingar. Samtal þeirra var tekið upp af starfsfólki Bahá'í heimsfréttaþjónustunnar fyrir röð hlaðvarpa (podcasts).

Fyrsti þátturinn fjallaði um andleg og siðferðileg verkefni fyrir ungt fólk. Næsta hlaðvarp beindi sjónunum að reynslu samfélagsskóla í Afríku. Í þessum þætti ræða álfuráðgjafarnir um tengslin milli tilbeiðslu og þjónustu og spjalla um fjölskyldulíf, samfélag og einingu kynþátta.