Frá Bahá'í útgáfunni:
Nýja bahá'í bókin „Töflur hinnar guðlegu áætlunar“ er nú komin úr prentun og er til sölu á Bahá'í þjóðarskrifstofunni. Verðið er 2500 kr. Bókin er mjög vönduð A5 kilja prentuð hjá Odda, um 90 síður að stærð.
Bókarlýsing: „Töflur hinnar guðlegu áætlunar“ er einstæð röð bréfa sem ‘Abdu’l-Bahá sendi til bahá’ía í Norður Ameríku og Grænlandi á tímabilinu 26. mars 1916 til 8. mars 1917. Þessi áætlun er, ásamt Kitáb-i-Aqdas, Töflu Karmels og Erfðaskrá 'Abdu'l-Bahá, stofnskrá heimsskipulags Bahá’u’lláh og trúar Hans. Hún er með orðum Shoghi Effendi „máttugasta áætlun sem nokkru sinni hefur verið mótuð með sköpunarkrafti Hins mesta nafns.“ Hún er „knúin öflum sem ekki er í okkar valdi að meta eða segja fyrir um“ og „haslar sér völl á starfsvettvangi sem nær til fimm meginlanda og eyjanna í heimshöfunum sjö.“ Hún ber í sér „fræ andlegrar endurlífgunar heimsins og endanlegs hjálpræðis hans.“