Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

“Við erum öll ein fjölskylda”: Trúarleiðtogar benda á mikilvægi menntunar til að koma á friði


25. maí 2022 Höfundur: siá

 

 

 

23. maí - HAÍFA, Ísrael — Bahá'í heimsmiðstöðin var gestgjafi tólftu ráðstefnu trúarleiðtoga, sem er haldin árlega. Ráðstefnan fór fram fyrir skömmu. Um það bil 115 manns tóku þátt í henni, þar á meðal leiðtogar ýmissa trúarsamfélaga, innanríkisráðherrann, bæjarstjóri Haífa, aðrir embættismenn og blaðamenn.

 

Á samkomunni var lögð höfuðáhersla á mikilvægt hlutverk menntunar til að stuðla að friðsamlegri sambúð, hlúa að siðgæði og þroska getuna til að tala saman á uppbyggilegan hátt.

 

Isaac Herzog foresti Ísraels, ávarpaði samkomuna í gegnum fjarfundabúnað. Hann fjallaði um það sem trúarbrögð eiga sameiginlegt og lagði áherslu á einingu í fjölbreytileika.

 

 

Nánar hér.