Vinir, nágrannar og kunningjar í hverfum og þorpum um allan heim hafa komið saman á heimilum og í görðum, og á ýmsum öðrum stöðum -stórum og smáum- til að ræða hvernig þeir geta stuðlað að þróttmiklum samfélögum sem byggja á hugsjón bahá'í trúarinnar um friðsaman heim.
Þessar samkomur, sem eru haldnar í hlýju og andlegu andrúmslofti, gera íbúum hverfisins kleift að mynda sterk vináttutengsl, með það í huga að bæta þjóðfélagið.
Ungmenni hafa gengt mikilvægu hlutverki á þessum samkomum. Þau hafa tekið virkan þátt í samræðunum og lagt margt til málanna, byggt á reynslu þeirra við að efla þjóðfélagsstarf á vegum bahá'í samfélagsins. Reynsla þeirra er til vitnis um það hvernig hægt er að umbreyta þjóðfélaginu, ef fólk vinnur af fórnfýsi til hagsbóta fyrir samborgara sína. Nánar á: https://news.bahai.org/story/1593/