Ár hvert, á fyrsta degi Ridvánhátíðarinnar, þann 21. apríl, fer fram kosning til andlegra svæðisráða bahá'ía um allan heim. Níu manns eiga sæti í hverju ráði. Að þessu sinni var kosið til sex andlegra svæðisráða á Íslandi, í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Akureyri og á Húsavík.