Ráðstefna á vegum bahá'í samfélagsins á Íslandi undir yfirskriftinni ,,Samtal um andlega og efnislega umbreytingu þjóðfélagsins” var haldin í Veröld, húsi Vigdísar, um seinustu helgi. Mikil vinna lá í undirbúningi ráðstefnunnar. Þátttaka var mjög góð á ráðstefnunni þar sem mættur var fjöldi bahá´ía og vina trúarinnar. Mjög góður andi var ríkjandi og almenn ánægja var meðal þátttakenda með hvernig til tókst með allt ráðstefnuhaldið.
Helgistundir og frábær tónlistaratriði voru andlega upplífgandi. Farið var yfir sýn Bahá’u’lláh fyrir mannkynið, saga bahá’í samfélagsins á Íslandi kynnt, rætt var um uppbyggingu þróttmikilla samfélaga á grunni einingar mannkyns, mikilvægi ævilangrar uppfræðslu, menntunar og þjálfunar, og hvernig má ná fram félagslegum umbreytingum í fjölbreytilegu og fjölmenningarlegu samfélagi nútímans. Dýpri umræður voru um þessi efnisatriði í minni hópum þar sem hver og einn fékk tækifæri til tjáningar. Og einnig voru sérstakir barna- og unglingahópar. Fleiri myndir frá ráðstefnunni er hægt að nálgast hér.