Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Fréttir

  • 
    1. September 2017 Höfundur: siá

    "Það dagar á ný": Tilbeiðsluhús vígt í Kambódíu

    Um það bil 2500 manns komu saman í morgun á ráðstefnu í tilefni af sögulegri vígslu bahá'í staðartilbeiðsluhússins í Battambang, Kambódíu.
  • 
    1. September 2017 Höfundur: siá

    Opið hús í Reykjanesbæ á Ljósanótt

    Bahá'íar í Reykjanesbæ verða með opið hús á Ljósanótt, laugardaginn 2. sept. frá kl. 15-18 í Bahá'í miðstöðinni Túngötu 11.
  • 
    31. August 2017 Höfundur: siá

    Hugleiðingar arkitekts musterisins í Battambang

    Arkitektinn Sochet Vitou Tang segir frá því að það hafi veitt honum mikla gleði að teikna bahá'í tilbeiðsluhúsið í Battambang, en það starf hófst fyrir tveimur árum síðan. Musterið er fyrsta bahá'í staðarmusterið (byggt fyrir ákveðinn stað, en ekki fyrir heila þjóð eða heimsálfu). Tilbeiðsluhúsið verður vígt á morgun.
  • 
    25. August 2017 Höfundur: siá

    Ný móttökustöð fyrir pílagríma opnar í Haifa

    Ný móttökustöð fyrir pílagríma var opnuð í þessum mánuði, tilbúin til að taka á móti auknum fjölda pílagríma og gesta við andlega og stjórnarfarslega miðstöð bahá'í trúarinnar.
  • 
    25. August 2017 Höfundur: siá

    Uppgræðsla á örfoka melum

    Helgina 19.-20. ágúst, var bahá‘íum og vinum þeirra boðið að koma í skógræktina að Skógum í Þorskafirði og kynna sér starfið sem þar hefur verið unnið síðasta áratuginn.
  • 
    21. August 2017 Höfundur: siá

    Heilögu tákni komið fyrir í tilbeiðsluhúsi í Kambódíu

    BATTAMBANG, Kambódíu, 21. ágúst — Heilögu bahá'í tákni – sem er tákn fyrir tengslin á milli Guðs, opinberenda Hans og mannkynsins, var komið fyrir í gær í svæðistilbeiðsluhúsinu í Battambang, Kambódíu.
  • 
    21. August 2017 Höfundur: siá

    Kyrrðarstundir í Mosfellsbæ

    Kyrrðarstundir eru haldnar heima hjá Ólafi Haraldssyni og Ragnheiði Ragnarsdóttur að Reykjabyggð 55 í Mosfellsbæ öll þriðjudagskvöld, kl 20. Leið 15 stoppar í næsta nágrenni. Allir eru hjartanlega velkomnir.
  • 
    18. August 2017 Höfundur: siá

    Landgræðsla að Skógum í Þorskafirði

    Starfið í Skógum er mikið og fjölbreytt. Girðingarvinna er yfirleitt fyrsta verk vorsins og keppast menn við að klára hana áður en bændur sleppa fé lausu. Því næst tekur áburðargjöf og fræsáning við og svo hafa verið gróðursettar um 7000 plöntur á hverju sumri.
  • 
    18. August 2017 Höfundur: siá

    Markvert samfélagsverkefni á Haiti

    Hjónin Holiday og Rainn Wilson, sem voru gestir bahá'í sumarskólans að Reykhólum í sumar reka samfélagsverkefni á Haiti. Þetta er greinilega félagslegt verkefni sem vert er að veita athygli.
  • 
    16. August 2017 Höfundur: siá

    Ungmenni þjálfa sig í að þjóna mannkyni

    Fjöldi ungmenna kom saman á Kistufelli um síðustu helgi til að nema bók 2 í Ruhí námshringnum, en hún fjallar um þjónustu.
  • 
    13. August 2017 Höfundur: siá

    Umdæmissamkoma í glaða sólskini að Kistufelli

    Bahá'íar hittast á þriggja mánaða fresti á svokölluðum "umdæmissamkomum." Ein slík samkoma var haldin í gær, laugardaginn 12. ágúst, í glaða sólskini úti undir beru lofti á landareign bahá'ía að Kistufelli undir Esjurótum. Sérstök dagskrá var haldin fyrir börnin. Mikið af ungmennum var meðal þáttakenda á umdæmissamkomunni, enda stóð yfir bahá'í þjálfunarnámskeið á staðnum.
  • 
    23. July 2017 Höfundur: siá

    Kyrrðarstundir í Mosfellsbæ á þriðjudögum

    Kyrrðarstundir eru haldnar heima hjá Ólafi Haraldssyni og Ragnheiði Ragnarsdóttur að Reykjabyggð 55 í Mosfellsbæ öll þriðjudagskvöld, kl 20. Leið 15 stoppar í næsta nágrenni. Allir eru hjartanlega velkomnir.
  • 
    10. July 2017 Höfundur: siá

    Píslarvættis Bábsins minnst um allan heim

    Bahá'íar um allan heim minntust í gær píslarvættis Bábsins, fyrirrennara bahá'í trúarinnar, sem átti sér stað í Tabrís í Persíu 9. júlí, 1850. Bahá'íar á Íslandi komu saman á ýmsum stöðum að þessu tilefni.
  • 
    30. June 2017 Höfundur: siá

    Bahá'íar frá Írak heimsækja þjóðarmiðstöðina

    Laugardaginn 1. júlí, var haldið opið hús í Bahá‘í miðstöðinni, Kletthálsi 1, Reykjavík, með hjónunum herra og frú Aqiqi, sem voru stödd hér á landi í nokkra daga. Þau eru bæði bahá'íar frá Írak, en eru búsett í Ottawa, Kanada. Þar í borg er öflugt bahá'í starf og eru átrúendurnir rúmlega eitt þúsund talsins.
  • 
    29. June 2017 Höfundur: siá

    Teikning af tilbeiðsluhúsinu á Tanna afhjúpuð

    TANNA, Vanuatu — Meira en þúsund manns söfnuðust saman sunnudaginn 18. júní síðastliðinn til að verða vitni að því þegar teikning af svæðistilbeiðsluhúsi á eyjunni Tanna í Vanuatu var afhjúpuð.

Pages