BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN — Exemplar (Fyrirmynd), kvikmynd sem Allsherjarhús
réttvísinnar lét gera til að minnast þess að öld er liðin frá andláti ‘Abdu’l-Bahá,
var frumsýnd á Bahai.org í dag. Kvikmyndin segir frá lífi ‘Abdu’l-Bahá og þeim
djúpu áhrifum sem hann hafði á fólk bæði í fortíð og nútíð.
Einstæðu hlutverki ‘Abdu’l-Bahá sem athvarf, skjöldur og virki fyrir allt mannkyn
er lýst með stuttum frásögnum nokkurra einstaklinga sem komust í kynni við hann
og hvernig líf þeirra gjörbreyttist eftir það.
Exemplar (Fyrirmyndin) verður sýnd í næstu viku á samkomu við Bahá’í
heimsmiðstöðina til að minnast þessa sögulega atburðar að viðstöddum
fulltrúum þjóðlegra og svæðisbundinna bahá’í stofnana víðsvegar að úr heiminum.
Kvikmyndin er 55 mínútur að lengd. Hún er fáanleg á arabísku, ensku, frönsku,
persnesku, rússnesku, spænsku og swahili.
Einnig er hægt að horfa á myndina á YouTube.