Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Viðtal við Dr. Hodu Þabet í Morgunblaðinu


4. March 2018 Höfundur: siá
Dr. Hoda Þabet ásamt eignmanni sínum, Nabeeh Naimi og syni þeirra, Shadman.

Hoda Þabet, Nabeeh Naimi og sonur þeirra, Shadman

Ítarlegt viðtal við Dr. Hodu Þabet birtist í Morgunblaðinu þann 3. mars.

Fjölskylda Dr. Hodu Þabet, sem er íslenskur ríkisborgari, var ofsótt í mörg ár í Jemen vegna trúar sinnar, en þau eru öll bahá'í trúar. Faðir hennar, systir og mágur voru meðal þeirra sem hnepptir voru í varðhald, karlmennirnir mánuðum saman. Fjölskyldan vissi ekki hvar þeir væru eða hvort þeir væru á lífi. Fólkið lagði í mikla hættuför um landið, þar sem vægðarlaust stríð hefur geisað árum saman og tókst að lokum að flýja. Frændi Hodu, er þó enn í fangelsi í Jemen. Hún og maður hennar búa á Íslandi ásamt ungum syni sínum. Hoda er doktor í bókmenntum frá Háskóla Íslands.

Viðtal við Dr. Hodu Þabet í Morgunblaðinu 3. mars

Viðtal við Dr. Hodu Þabet í Morgunblaðinu 3. mars

Ofsóknir á hendur átrúendum í Jemen eru vægðarlausar. Þegar bahá'íar um heim allan héldu tvö hundruð ára fæðingarafmæli Bahá’u’lláh hátíðlegt 21.-22. október 2017 réðust öryggissveitir Jemena á bahá’í samkomu í Sana’a í Jemen sunnudaginn 22. október og hófu skothríð á lítinn hóp samankominn til að halda upp á fæðingarafmælið. Ofsóknir í Jemen voru hertar í ágúst 2016 þegar Houthi hermenn rændu 65 bahá'íum, þar af sex börnum. Í apríl 2017 var gefin út tilskipun um handtöku hátt í þrjátíu bahá'ía, þar á meðal margra þekktra meðlima bahá’í samfélagsins. Sjö bahá’íar eru enn í haldi og það er óljóst hvar nokkrir þeirra eru. Þeir sem eru í haldi eru: Walid Ayyash ræðismaður og bróðir hans Akram Ayyash, Hamed Haydara, Mahmood Hameed, Wael Arayqi, Kaywan Qaderi og Badi’u’llah Sanai. Menn eru núna á einu máli um þátt Írans í ofsóknum á hendur bahá’íum í Jemen, einkum í Sana’a, sem nú lýtur stjórn herliðs sem fær stuðning frá Íran.

Þann 2. janúar bárust þær hörmulegu fréttir að Hamed bin Haydara sem var handtekinn árið 2013 hafi verið dæmdur til lífláts. Kjörnar svæðisstofnanir bahá’ía voru einnig leystar upp og öllu bahá’í samfélaginu stofnað í bráða hættu. Hamed, sem er fjölskyldumaður, hefur verið pyntaður, honum haldið í einangrun og heilsu hans hefur hrakað. Það vekur þó nokkra von að mótmælaraddir hafa heyrst víða um heim og í því sambandi eru raddir samalanda hans í Jemen og annarra í Sádí-Arabíu sérstaklega uppörvandi.