Veggmynd varð smátt og smátt til yfir níu daga tímabil í kaffihúsi í borginni New Jersy í Bandaríkjunum í lok október í tilefni af hátíðarhöldunum sem haldnar voru víða um heiminn til að minnast 200 ára afmælis Bahá'u'lláh. Veggmyndin var innblásin af þessari tilvitnun eftir Bahá'u'lláh: “Svo öflugt er ljós einingar að það getur upplýst alla jörðina." Þessi frétt er ein af fjölmörgum fréttum á glæsilegum vef sem opnaður var í tengslum við hátíðarhöldin. Þar er hægt að skoða myndbönd og ljósmyndir og lesa áhugaverðar frásagnir af þeim fjölbreyttu atburðum sem áttu sér stað víða um heim. Á kynningarsíðu vefsins er nýtt myndband frá öllum bahá'í tilbeiðsluhúsunum og sýnt er auk þess frá nokkrum viðburðum og skemmtiatriðum hátíðarhaldanna. Þó að hátíðini sé lokið verður vefurinn opinn áfram. Sjá kynningarmyndbandið og frétt um opnun vefsins á ensku hér. Fréttin um veggmyndina er ein af fréttunum undir liðnum "listræn tjáning" (Artistic Expressions) og fréttinni fylgir stutt myndband, sjá hér.