Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Þrettánda alþjóðaþingið: Fulltrúar undirbúa sig andlega fyrir heilaga skyldu


28. April 2023 Höfundur: siá

 

BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN — Er þrettánda alþjóða bahá‘í þingið nálgast hafa fulltrúar víðs vegar að úr heiminum andað að sér andrúmslofti bahá‘í helgistaðanna. Þessar heimsóknir til staða, sem eru nátengdir lífi Bahá’u’lláh og ‘Abdu’l-Bahá, gefa fulltrúunum einstakt tækifæri til að undirbúa sig fyrir sína heilögu skyldu: að kjósa Allsherjarhús réttvísinnar.
 
Á vefnum news.bahai.org er að finna myndir sem veita innsýn í þá hrífandi reynslu sem fulltrúarnir urðu fyrir þegar þeir heimsóttu bahá‘í helgistaðina í ‘Akká og Haífa.

 

Fulltrúar frá mörgum löndum koma saman í fangelsinu í ‘Akká

Fulltrúar frá mörgum löndum koma saman í fangelsinu í ‘Akká