19. október 2022. Á 77. fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna bentu fulltrúar Alþjóðlega bahá‘í samfélagsins (Bahá‘í International Community, BIC) í New York á nauðsyn sameiginlegrar sýnar sem byggir á grundvallarkenningunni um einingu mannkyns. Daniel Perell sagði: “Grundvallarviðmiðið verður stöðugt að vera að fjölskylda mannsins er ein, að þeir fjölmörgu hagsmunir sem við höfum hvert og eitt eru þegar allt kemur til alls ekki jafn mikilvægir og heildarhagsmunir mannkynsins.” ► Nánar á BWNS: https://news.bahai.org/story/1621/