Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Bahá’í heimsfréttaveitan: BWNS á rússnesku hleypt af stokkunum


19. August 2022 Höfundur: siá

 

 

 

BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN, 19. Ágúst  2022, (BWNS) — Bahá’í heimsfréttaveitan er nú fáanleg á rússnesku Russian. Þetta er til vitnis um þá þróun sem fréttaþjónustan hefur tekið frá því að hún var stofnuð fyrir tveimur áratugum.

Fréttaþjónustan, sem var stofnuð árið 2000, flytur fréttir af starfsemi bahá’í samfélaga víðs vegar um heiminn, sem leitast við að bæta þjóðfélagið.

Rússneska fréttaveitan bætist nú í hóp sambærilegra vefa, sem eru til á ensku, frönsku, persnesku og spænsku.

Auk vefsins, er fréttaþjónustan einnig fáanleg fyrir farsíma (Android og iOS), á FacebookInstagramTwitter, og YouTube, eða sem áskrift í gegnum tölvupóst.