BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN — Framkvæmdir halda áfram við byggingu helgidóms ‘Abdu’l-Bahá eftir eldinn sem kviknaði fyrir slysni snemma í apríl.
Vel hefur gengið að hreinsa svæðið sem varð illa úti. Eftir nákvæmar rannsóknir, sem sagt var frá í skilaboðum frá Allsherjarhúsi réttvísinnar um helgidóminn í síðastliðnum mánuði, hafa verktakarnir hafist handa við að gera við og endurbyggja þau svæði sem urðu fyrir skemmdum. Samtímis hefur vinnan við aðra hluta byggingarinnar sem sluppu haldið áfram af fullum þunga. Nánar hér.