Landsþingsfulltrúar, fulltrúar álfuráðs og meðlimir fráfarandi þjóðarráðs ræða saman um málefni Málstaðarins á Íslandi
Það ríkti mikil tilhlökkun um helgina meðal þátttakenda þegar landsþing bahá'ía gat loks komið aftur saman í eigin persónu eftir að sóttvarnarráðstöfunum var aflétt.
19 fulltrúar víðs vegar af landinu ræddu um málefni málstaðarins, ásamt meðlimum fráfarandi þjóðarráðs og fulltrúum álfuráðs. Þingið fór fram í þjóðarmiðstöð samtakanna að Kletthálsi 1. Fulltrúarnir uppfyllt þá skyldu sína að kjósa nýtt níu manna andlegt þjóðarráð, sem er æðsta stjórnstofnun trúarinnar á Íslandi. Þjóðarráðið er kosið árlega meðan á Ridvánhátíðinni stendur. Innilegur andi einingar og ástar var ríkjandi á þinginu.
Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá fyrsta landsþinginu og fyrstu kosningu andlegs þjóðarráðs var sérstök kvölddagsskrá á laugardeginum þar sem litið var yfir farinn veg. Nokkrir þeirra sem brautruddu til landsins fyrir 50 árum og rúmlega það, til að gera fyrsta landsþingið mögulegt, tóku þátt í gegnum Zoom.