Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Helgidómur ‘Abdu’l-Bahá: Stuttmynd um byggingarferlið


1. May 2023 Höfundur: siá

1. maí, 2023

BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN — Stutt heimildamynd um byggingu helgidóms ‘Abdu’l-Bahá var frumsýnd í dag.

Fulltrúarnir horfðu á 22 mínútna heimildamynd, sem Allsherjarhús réttvísinnar lét gera fyrir 13. Bahá‘í heimsþingið. Myndin fjallar um byggingu helgidóms ‘Abdu’l-Bahá og hreinsunina eftir eldinn sem braust út fyrir slysni snemma í apríl 2022.

Myndina er hægt að horfa á hér fyrir ofan og á YouTube. Myndin verður gefin út innan skamms textuð á arabísku, frönsku, rússnesku og spænsku, en útgáfa myndarinnar með persneskum texta er þegar fáanleg hér.