Dagana 30. júní til 2. júlí verður haldið sumarmót fyrir alla fjölskylduna í Reykhólaskóla í ættarmótsstíl. Þar verður boðið upp á samveru og fræðslu, grill og göngutúr, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Meðan á ráðstefnu álfuráðgjafa sem haldin var við Bahá‘í heimsmiðstöðina stóð, settust nokkrir ráðgjafar niður til að ræða saman um ungmenni og þjóðfélagsbreytingar, framsókn kvenna og siðferðilegt og andlegt fræðslustarf á vegum bahá‘ía.
Ferð þátttakenda Bahá‘í heimsþingsins náði hámarki í gærkvöldi þegar þeir héldu upp á Riḍvánhátíðina á helgi grund í kringum helgidóm Bahá'u'llah í Bahjí. Myndband fylgir þessari frétt.
Meira en 160 fulltrúum 13. heimsþingsins og um það bil 150 embættismönnum, sendifulltrúum, frammámönnum og trúarleiðtogum gyðinga, múslima, kristinna og drúsa er boðið til móttöku hjá borgarstjóra Haífa
ALÞJÓÐLEGA BAHÁ’Í SAMFÉLAGIÐ, GENF — Yfir 150 íranskir mannréttindafrömuðir og aðgerðasinnar á sviði stjórn- og þjóðfélagsmála hafa undirritað öfluga opinbera yfirlýsingu (á persnesku með enskri þýðingu) þar sem þeir fordæma „nýja handtökubylgju gegn bahá’íum og hvernig brotið er á grundvallarmannréttindum og borgaralegum réttindum þeirra.“
PORT MORESBY, Papúa Nýju-Gíneu — Í nýja bahá’í tilbeiðsluhúsinu í Papúa Nýju-Gíneu (PNG), mynda 432 timburplötur, sem innlendir handverksmenn hafa skorið út, ramma um þær níu dyr sem brátt munu standa fjölbreyttum ættflokkum landsins opnar.
PATNA, Indlandi — Í nýlegri heimsókn til Bahá’í heimsmiðstöðvarinnar ræddi Bhavna Anbarasan, meðlimur Álfuráðs Asíu, við heimsfréttaþjónustuna um hvernig samfélagsuppbygging í þorpum í Bihar-fylki á Indlandi er að skapa nýja jafnréttismenningu.
Bahá’í útgáfan hefur gefið út nýja samantekt sem ber heitið Skipan komið á heiminn – Uppbygging og varðveisla traustra hjónabanda. Samantektin var unnin af Rannsóknadeild Allsherjarhúss réttvísinnar og kom út í ágúst 2023 á ensku.