Í október á þessu ári verður þess minnst að 200 ár eru liðin frá fæðingu fyrirrennara bahá'í trúarinnar, Bábsins, sem ruddi brautina fyrir komu Bahá'u'lláh á dramatískan hátt.
Farin verður dags kynningarferð til Skóga í Þorskafirði 15. júní næstkomandi, en þar hafa bahá'íar og vinir þeirra annast landgræðslu og skógrækt í marga áratugi.
Þorpsöldungar og embættismenn tóku þátt í tveimur sérstökum athöfnum á síðastliðnum vikum til að vígja nýjar byggingar sem eru ætlaðar til fræðslustarfs í Sambíu.
ALÞJÓÐLEGA BAHÁ’Í SAMFÉLAGIÐ, GENF — Yfir 150 íranskir mannréttindafrömuðir og aðgerðasinnar á sviði stjórn- og þjóðfélagsmála hafa undirritað öfluga opinbera yfirlýsingu (á persnesku með enskri þýðingu) þar sem þeir fordæma „nýja handtökubylgju gegn bahá’íum og hvernig brotið er á grundvallarmannréttindum og borgaralegum réttindum þeirra.“
PORT MORESBY, Papúa Nýju-Gíneu — Í nýja bahá’í tilbeiðsluhúsinu í Papúa Nýju-Gíneu (PNG), mynda 432 timburplötur, sem innlendir handverksmenn hafa skorið út, ramma um þær níu dyr sem brátt munu standa fjölbreyttum ættflokkum landsins opnar.
PATNA, Indlandi — Í nýlegri heimsókn til Bahá’í heimsmiðstöðvarinnar ræddi Bhavna Anbarasan, meðlimur Álfuráðs Asíu, við heimsfréttaþjónustuna um hvernig samfélagsuppbygging í þorpum í Bihar-fylki á Indlandi er að skapa nýja jafnréttismenningu.
Bahá’í útgáfan hefur gefið út nýja samantekt sem ber heitið Skipan komið á heiminn – Uppbygging og varðveisla traustra hjónabanda. Samantektin var unnin af Rannsóknadeild Allsherjarhúss réttvísinnar og kom út í ágúst 2023 á ensku.