Samráðsvettvangur trú- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi, sem Bahá'í samfélagið á aðild að, býður öllum áhugasömum á málþingið „Umburðarlyndi og óþol gagnvart minnihlutahópum“.
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 kl. 18:00-19:30
Borgarbókasafnið í Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, Reykjavík
Málþingið er haldið í tilefni af 20 ára afmæli Samráðsvettvangsins og verður þar fjallað um stöðu og réttindi trúar- og lífsskoðunarminnihlutahópa á Íslandi. Einnig verður rætt hvernig megi efla málefnalega umræðu, umburðarlyndi, gagnkvæma virðingu og skilning í sífellt fjölbreyttara samfélagi.
Fundarstjóri verður Sigurður Rúnarsson, varaformaður Siðmenntar, og sr. Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, mun fjalla um sögu og starf Samráðsvettvangsins.
Gestafyrirlesarar frá Háskóla Íslands eru:
- Guðbjörg Ottósdóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild
- Haraldur Hreinsson, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
- Kristján Þór Sigurðsson, stundakennari við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Að loknum erindum verða opnar umræður og boðið upp á veitingar.
Kvikmyndasýning á fimmtudag
Af þessu tilefni verður einnig sýnd breska gamanmyndin The Infidel í Bíói Paradís fimmtudaginn 26. nóvember. Nánari upplýsingar um sýningartíma verða kynntar síðar.
Hlekkur á viðburðinn (event) á Facebook.
Symposium Hosted by STLÍ
The Consultative Forum of Religious and Life-Stance Organisations in Iceland, of which the Bahá'í community is a member, invites all those interested to the symposium "Tolerance and Intolerance Towards Minority Groups".
Tuesday 24 November 2026, 18:00–19:30
Reykjavík City Library, Gerðuberg, Gerðuberg 3-5, Reykjavík
The symposium is being held to mark the 20th anniversary of the Consultative Forum and will address the status and rights of religious and life-stance minority groups in Iceland. There will also be discussion of how to foster constructive dialogue, tolerance, mutual respect and understanding in an increasingly diverse society.
The symposium will be chaired by Sigurður Rúnarsson, Vice-Chair of Siðmennt, and Rev. Jakob Rolland, Chancellor of the Catholic Church in Iceland, will speak about the history and work of the Consultative Forum.
Guest speakers from the University of Iceland are:
- Guðbjörg Ottósdóttir, Associate Professor at the Faculty of Social Work
- Haraldur Hreinsson, Associate Professor at the Faculty of Theology and Religious Studies
- Kristján Þór Sigurðsson, Sessional Lecturer at the Faculty of Sociology, Anthropology and Folkloristics
The talks will be followed by an open discussion and refreshments. Film Screening on Thursday
To mark the occasion, the British comedy The Infidel will also be screened at Bíó Paradís on Thursday 26 November. Further details on screening times will be announced later.

