Fæðingarhátíð Bahá’u’lláh

Fæðingarhátíð Bahá’u’lláh

þriðjudagur, 10 Nóvember 2026

Í dag kl. 18:00 hefst fæðingarhátíð Bahá’u’lláh, stofnanda bahá’í trúarinnar.

Um miðja 19. öld fól Guð Bahá’u’lláh, sem þýðir „Dýrð Guðs“, að flytja mannkyni nýja opinberun. Í fjóra áratugi opinberaði hann þúsundir versa, bréfa og bóka. Í ritum sínum lýsti hann þeim innviðum sem byggja þyrfti til að þróa hnattræna siðmenningu sem myndi bæði uppfylla andlega og efnislega þætti mannlífsins.

Bahá’íar á Íslandi munu minnast fæðingar Bahá’u’lláh í kvöld og á morgun. Í Reykjavík verður fæðingarhátíðarinnar minnst í Bahá’í þjóðarmiðstöðinni að Kletthálsi 1 kl. 18:00 og bahá’íar í Kópavogi minnast fæðingar hans í Árskógum 4 á sama tíma.

Leit